DEFA eMove Mode 2 Cable 10A1 / 8
1 / 8
DEFA-502003Fyrir heimili og fyrirtæki

DEFA eMove Mode 2 Cable 10A

eMove Mode 2 er færanlegt hleðslutæki fyrir rafbíla með Type 2-bílkló og heimilisklói (Type E/F Schuko, CEE 7/7) fyrir venjulega innstungu.

80.900 kr.Smásöluverð með VSK
DEFA-502003

Sótt í Síðumúla 1 eða sent með Póstinum eða Dropp.

Helstu eiginleikar

eMove Mode 2 er færanlegt hleðslutæki fyrir rafbíla með Type 2-bílkló og heimilisklói (Type E/F Schuko, CEE 7/7) fyrir venjulega innstungu. Þessi útgáfa (502003) hleður með 10 A, með High-stillingu á 15 A fyrstu 120 mínúturnar og forstilltri lágri stillingu á 8 A, á 6 m kapli. Hún fylgist með hitanum í heimilisklónni og stjórnboxinu og stöðvar hleðsluna ef hann verður of mikill. Stjórnboxið er úr áli og þolir harða meðferð og veggfesting fylgir.

  • 10 A venjulega, 15 A í High-stillingu í 120 mín., 8 A forstillt lágt
  • Type 2-bílkló með loki og ól; Schuko-heimilisklói (CEE 7/7)
  • 6 m heildarlengd, sveigjanlegur niður í -40 °C
  • Hitavöktun í kló og stjórnboxi
  • Lekavörn 30 mA AC og 6 mA DC; TN- og IT-kerfi
  • Stjórnbox úr áli, IP67; veggfesting fylgir